Hæhæ
Hér verða í vetur settar inn upplýsingar um hvað er að gerast hjá okkur í minniboltanum.
Eins og þið vitið þá eru æfingar komnar á fullt og það fer að koma endanleg mynd á hópinn.
Hingað til hafa allir krakkar undir 11 ára verið á sama tíma og við skellt æfingunum saman hjá stelpum og strákum til þess að geta haft fleiri saman og haft meira gaman.
En ég er semsagt þjálfari stelpnanna og er Björgvin með strákana en við höfum þó verið að stjórna æfingunum í sameiningu :-)
Af æfingum er það að segja að yngri krakkarnir hafa ekkert gefið þeim eldri eftir og þau sem eru eldri og reyndari verið þokkalega dugleg að aðstoða þau á móti, þannig að þetta hefur komið alveg ágætlega út.
Það er stefnan að á næstu dögum fari fulltrúar körfuknattleiksdeildarinnar í skólana í hverfinu og kynni starfið og við vonumst auðvitað eftir því að ná inn nokkrum nýjum andlitum þannig að við fáum stærri hóp og getum skipt æfingum meira niður eftir því sem hentar best og einnig til þess að styrkja körfuknattleiksdeildina hjá okkur til framtíðar ;-)
Mótaplan fyrir veturinn fer að komast á hreint, þ.e. hvort stefnan verði tekin á Íslandsmót eða hvort það verði stefnt á svokölluð hraðmót sem eru nokkur í boði og eru í umsjón félagana sem halda þau. Þið fáið upplýsingar um það þegar það er komið á hreint.
En ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega spyrjið, hringið eða bara sendið mér tölvupóst.
Kveðja
Guðrún