Saturday, November 28, 2009

Sunnudagsæfing fellur niður

Hæhæ, því miður fellur körfuboltaæfingin á morgunn, sunnudaginn 29.nóv, niður. Handboltaleikur í salnum. Vonandi gerist þetta ekki mikið oftar í vetur.
Bestu kveðjur Guðrún og Björgvin

Wednesday, November 18, 2009

Vinaæfing

Næsta föstudag, þann 20. nóv., mega allir koma með vin með sér á æfingu.
Vonandi fá sem flestir einhvern til að koma með sér og svo höfum við gaman af æfingunni og sýnum þeim hvernig við gerum þetta ;-)

Sjáumst á föstudaginn...

kv. Guðrún og Björgvin

Friday, November 13, 2009

Æfing fellur niður sunnudaginn 15. nóv.

Æfingin kl. 13:00 á sunnudaginn (15.nóv.) fellur niður vegna handboltaleiks.

Kv. Björgvin og Guðrún

Friday, November 6, 2009

Æfingaleikur 10. nóv.

Kæru foreldra/forráðarmenn

Næsta þriðjudag (10. nóv.) ætlar minniboltinn að keppa æfingaleik við minniboltalið Breiðabliks. Leikurinn mun fara fram í Vodefone-höllinni á æfingatímanum okkar kl. 15:50. Keppt verður 2x10 mín. og fá allir að spreyta sig nóg. Eftir leikinn verður svo farið uppí Lollastúku og snætt á pizzum, iðkendur þurfa að koma með 700 krónur fyrir pizzunum.

Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega hafið samband,

Björgvin Rúnar (866-3043) og Guðrún (867-4245)