
Síðustu helgina fyrir jól tóku strákarnir í minnibolta Vals þátt í actavismóti Hauka sem haldið var á Ásvöllum í Hafnairði. Þeir spiluðu þrjá leiki á mótinu, tvo við sitthvort KR liðið og síðan á móti heimamönnum.
Drengirnir stóðu sig gríðarlega vel á móti og bættu sig mjög mikið í hverjum leik. Flottir leikmenn hér á ferð sem eiga eftir að gera góða hluti í boltanum!
Jólakveðja, Björgvin Rúnar þjálfari