Helgina 19-20 desember fer fram Actavismót Hauka. Mótið er með sama fyrirkomulagi og Hópbílamót Fjölnis sem að stúlkurnar fóru á fyrr í vetur þar sem að allir taka þátt og engin stig eru talin. Allir þátttakendur fá verðlaun að lokinni keppni og er skemmtunin í fyrirrúm.
Leikjaniðurröðun er ekki tilbúin eins og er og munum við setja hana hérna inn um leið og hún er klár.
Þátttökugjald er í algjöru lágmarki eða 1.500 krónur á hvern þátttakenda. Við hvetjum alla foreldra til þess að mæta á svæðið til þess að fylgjast með og hvetja okkar ungu liðsmenn til dáða.
Friday, December 11, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment