Friday, October 30, 2009

Stelpur á hópbílamót

Jæja fyrsta mót vetrarins hjá stelpunum um helgina!

Nú er komið að því að spila alvöru leiki, mikil spenna í hópnum...
Mikilvægast er að hafa gaman af því að vera með og gera sitt besta, fyrir sjálfan sig og liðsfélagana.
Það eru fáir leikmenn og á mismunandi aldri þannig að allar verða að hjálpast að og vera jákvæðar!

Við erum Valur og við verðum að haga okkur vel fyrir hönd félagsins okkar, ekki það að við höfum miklar áhyggjur af svona klárum og duglegum stelpum!

Leikir:
Laugardagur
9:50 Valur – Kormákur
10:30 Bíóferð
14:10 Keflavík (24) – Valur
16:15 Keflavík (23) - Valur

Sunnudagur:
09:55 Ármann – Valur
10:45 Keflavík (22) - Valur

Hlökkum til ... :-)

Áfram Valur!
Guðrún og Björgvin

Wednesday, October 21, 2009

Minnum á rafræna Reykjavík

Allir foreldrar að athuga!
Nú á að vera búið að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið verður
fyrir ráðstöfun til 31. október en eftir það verða sendir út greiðsluseðlar.
Ef barnið ykkar er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við
skrifstofuna.

Friday, October 16, 2009

Foreldrafundur

Hæhæ
Þá er kominn tími á foreldrafund. Hann verður haldinn á þriðjudaginn í næstu viku, þann 27. okt. klukkan 19:00 í Lollastúku (efst uppi, beint af augum þegar gengið er inn í húsið).
Krakkarnir fengu miða á þriðjudaginn með þessum upplýsingum.

Á fundinum verður farið yfir starf vetrarins, keppnir, fjáraflanir ofl.

Sjáumst þá..

kv. Guðrún og Björgvin