Saturday, December 26, 2009

Strákarnir stóðu sig vel!
















Síðustu helgina fyrir jól tóku strákarnir í minnibolta Vals þátt í actavismóti Hauka sem haldið var á Ásvöllum í Hafnairði. Þeir spiluðu þrjá leiki á mótinu, tvo við sitthvort KR liðið og síðan á móti heimamönnum.

Drengirnir stóðu sig gríðarlega vel á móti og bættu sig mjög mikið í hverjum leik. Flottir leikmenn hér á ferð sem eiga eftir að gera góða hluti í boltanum!

Jólakveðja, Björgvin Rúnar þjálfari

Friday, December 18, 2009

Leikirnir hjá strákunum um helgina

Hérna eru leikirnir hjá strákunum um helgina:

ALLIR LEIKIRNIR FARA FRAM Á ÁSVÖLLUM Í HAFNAFIRÐI (HEIMAVELLI HAUKA)

Laugardaginn 19. des. ´09
kl. 13:00 völlur 3 KR3 - Valur
kl. 14:00 völlur 3 KR4 - Valur
kl. 15:00 völlur 2 Haukar 1 - Valur

Leikmenn þurfa að vera mættir minnst hálftíma fyrir fyrsta leik og gott væri fyrir þá að hafa nesti með sér til að borða á milli leikja.

Kv. Björgvin (866-3043)

Friday, December 11, 2009

Actavismót

Helgina 19-20 desember fer fram Actavismót Hauka. Mótið er með sama fyrirkomulagi og Hópbílamót Fjölnis sem að stúlkurnar fóru á fyrr í vetur þar sem að allir taka þátt og engin stig eru talin. Allir þátttakendur fá verðlaun að lokinni keppni og er skemmtunin í fyrirrúm.

Leikjaniðurröðun er ekki tilbúin eins og er og munum við setja hana hérna inn um leið og hún er klár.

Þátttökugjald er í algjöru lágmarki eða 1.500 krónur á hvern þátttakenda. Við hvetjum alla foreldra til þess að mæta á svæðið til þess að fylgjast með og hvetja okkar ungu liðsmenn til dáða.