UPPFÆRT! ákveðið að senda liðin ekki í þetta mót, förum á póstmót breiðabliks í staðinn. nánar síðar
Wednesday, December 15, 2010
Jólafrí og Actavismót Hauka. (UPPFÆRT!)
UPPFÆRT! ákveðið að senda liðin ekki í þetta mót, förum á póstmót breiðabliks í staðinn. nánar síðar
Wednesday, December 1, 2010
Dagskrá á jólamóti nettó
Verum mætt amk. 20. mínútum fyrir fyrsta leik.
Þátttökugjald 2500 krónur á hvern iðkanda sem greiðist til þjálfara fyrir fyrsta leik. (ÍR ákvað að fella niður 5000 króna þátttökugjald)
Tuesday, November 30, 2010
Nettómót ÍR helgina 4-5 desember.
JÓLAMÓT NETTÓ OG ÍR
Helgina 4.-5. desember n.k. mun körfuknattleiksdeild ÍR standa fyrir stórmóti
í samvinnu við Nettó. Mótið er fyrir yngstu iðkendurna, drengi og stúlkur, sem
fædd eru 1999-2004. Keppt verður í Íþróttahúsinu við Seljaskóla.
Leikið verður 2 x 10 mínútur og verður leiktíminn ekki stöðvaður. Mótið
mun fara fram á tveimur völlum í senn (spilað 5 á 5). Stigin verða ekki talin
enda allir komnir í jóla-keppnisskap. Hver hópur mun spila 3-4 leiki annan hvorn daginn og á það að klárast á 3-4 tímum.
Við í Val ætlum auðvitað ekki að láta okkar eftir liggja og förum með lið í nokkrum aldurshópum. Aldurshóparnir eru:
6-7 ára kk/kvk (Bloggsíða: http://valurkarfamb6-7.blogspot.com/)
8-9 ára kk (Bloggsíða: http://valurkarfamb8-9.blogspot.com/ )
10-11 kvk (Bloggsíða: http://valurkarfambkv.blogspot.com/ )
10-11 kk (Bloggsíða: http://valurkarfamb10-11.blogspot.com/ )
Við munum tilkynna leikdag og leiktíma á bloggsíðunum vonandi í seinasta lagi á fimmtudag.
Valur borgar engin mótsgjöld yngri flokka utan Íslandsmóta og því mun gjaldið deilast niður á þátttakendur. Þátttökugjald á hvern iðkanda er því krónur 3.000 sem ætti að vera rúmlega nóg fyrir gjaldinu. Afgangurinn mun ganga upp í mótsgjald næsta móts fyrir þá sem taka þátt í þessu móti. Gjaldið skal greiða til þjálfara á leikdegi fyrir fyrsta leik.
Minni alla á að verða sér út um búninga í Hummel búðinni milli kl. 16:00-18:00 í þessari viku.
Allar nánari upplýsingar verða settar inn á bloggið reglulega fyrir helgina.
Ef einhverjar spurningar eru sendið þá póst á Lydur06@ru.is
Monday, November 22, 2010
Pizzaveisla
Tuesday, September 14, 2010
Æfing fellur niður
Thursday, August 19, 2010
ÆFINGAR HEFJAST AFTUR
Thursday, August 5, 2010
Æfingabúðir
Saturday, May 29, 2010
Strákabíó

Út af því að æfingatímabilið er að ljúka ætlum við að fara í bíó á seinustu æfingu vetrarins! Stefnt er að fara á sunnudaginn klukkan 13 í bíó á Álfabakka. Myndin sem við ætlum á er Ofurstrákurinn. Myndin byrjar kl 13:30 þannig að allir þurfa að vera mættir upp í Valsheimili fyrir kl 13 svo við komum ekki of seint á myndina. Bíóið kostar 600 krónur.
Það þarf tvo bíla til að skutla liðinu niður á Álfabakka. Þjálfari (Björgvin) fer á einum bíl og síðan þarf eitt foreldri til að keyra líka.
Ég kvet alla til að mæta þar sem þetta er í seinasta sinn sem liðið hittist í vetur.
Friday, May 21, 2010
Æfing á hvítasunnudag fellur niður
Monday, May 10, 2010
Uppskeruhátíð yngri flokka

Körfubolti í Val
Uppskeruhátíð yngri flokka
Uppskeruhátíð yngri flokkanna í körfubolta verður haldin í hátíðarsal Vodafone hallarinnar þriðjudaginn 18. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2009-2010.
Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.
Með Valskveðju
Uppskeruhátíðarnefnd
Monday, May 3, 2010
Stelpukeila!
Mætum allar á Hlíðarenda og löbbum saman upp í keiluhöll.
Keilan sjálf tekur klukkutíma og svo er pizzaveisla á eftir :-D
Reiknum því með að vera til kl: 17:30.
Allar að koma með 1550 kr. fyrir keilu og pizzu.
Sjáumst, kveðja Guðrún
Friday, April 23, 2010
Úrslit unglingaflokks karla
Á laugardaginn spila okkar menn í Val gegn Haukum kl. 16:45 og hvetjum við alla iðkendur til þess að mæta og styðja sitt lið til sigurs.
Ef Valur sigrar í þessum leik þá spila þeir til úrslita á sunnudaginn kl. 18:00
Monday, April 12, 2010
Saturday, March 27, 2010
Páskafrí
(engin æfing á morgun sunnudaginn 28.)
Endilega takið þátt í æfingabúðum Vals sem eru í næstu viku!
(sjá síðasta póst)
Næsta æfing eftir frí er svo þriðjudaginn 6. apríl.
Hafið það gott í fríinu.
kv. Guðrún og Björgvin
Monday, March 22, 2010
Æfingabúðir Vals um páskana
Boðið verður upp á tvo aldursflokka, yngri og eldri. Yngri iðkendur fæddir 1998-2003 (6-11 ára) eru frá kl. 09:00-11:30. Ráðlegt er að senda börnin með smávegis næringu með á æfingarnar en hlé verður gert á æfingum milli 10:00-10:20 til þess að nærast.
Eldri iðkendur fæddir 1993-1997 (12-16 ára) eru frá kl. 12:00-14:00
Æfingabúðirnar munu einkennast af grunn- og tækniþjálfun þar sem lögð verður áhersla á einstaklinginn. Æfingabúðir yngri iðkenda munu þó einnig einkennast af leikjum og skemmtun en á síðasta degi æfingabúðanna verður haldið mót milli iðkenda í hvorum aldurshópi fyrir sig.Þátttökugjald er kr. 3.000 krónur sem greiðist á fyrsta degi æfingabúðanna.
50% Vinaafsláttur: Ef þú ert Valsari og langar að bjóða einhverjum utan félagsins með þér í æfingabúðirnar þá er það alveg sjálfsagt. Ef þú færð einhvern vin með þér í æfingabúðirnar þá borgið þið báðir/báðar einungis hálft gjald.
Skráningar berist til Lýðs á netfangið Lydur06@ru.is eða í síma 694-4033. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu iðkenda sem og nafn, kennitölu og gsm-símanúmer foreldra.
Saturday, March 20, 2010
Sunnudagurinn 21.mars
Æfingin hjá okkur verður kl 12:00 á morgun, í sal 1.
Meistaraflokkur karla er í úrslitakeppni 1.deildar og markmiðið er að komast upp í úrvalsdeild.
Fyrsti leikurinn í undanúrslitaeinvíginu er á sunnudaginn.
Valur - Skallagrímur
kl: 20:00
Endilega mæta og styðja Val!
Bestu kveðjur
Guðrún og Björgvin
Friday, March 5, 2010
Nettómótið - Upplýsingar fyrir strákana
Það er ekki ennþá komið á hreint hvar við gistum. En þeir sem ætla að gista með okkur þurfa að hafa með sér svefnpoka og dýnu(mæli með dýnum sem hægt er blása upp). En annars þurfa allir leikmenn að hafa með sér hrein föt til skiptana, nóg af nesti til að borða á milli leikja, húlpu, húfu og síðan Valsbúningurinn sinn og körfuboltaskór.
Brottför
Við leggjum af stað til Keflavíkur kl. 07:30 frá Vodafone-höllinni og verða allir iðkendur í samfloti á staðinn. Ég(þjálfari) keyrir á staðinn ásamt nokkrum foreldrum.
Kostaður
Mótsgjaldið er 6.000 krónur fyrir hvern leikmann en innifalið í því gjaldi er matur, gisting og keppnisgjald ásamt því að leikmenn fá frítt í sund um helgina.
Ég vill hvetja foreldra til vera virkir á mótinu og taka þátt í gleðinni með krökkunum og ekki hika við það að bjalla á mig ef það vantar einhverjar upplýsingar.
Dagskrá leikja um helgina:
Laugardagur
Valur 3 – KR 7 Völlur 10 – 10:00
Valur 3 – Snæfell 4 Völlur 10 – 12:30
Njarðvík 7 – Valur 3 Völlur 9 – 14:30
Keflavík 7 – Valur 3 Völlur 9 – 19:00
Sunnudagur
Stjarnan 7 – Valur 3 – Völlur 5 – 13:30
BÍÓFERÐ – Old Dogs – 11:00
Kveðja, Björgvim (866-3043)
Síðasta tilkynning fyrir Nettómót.
Allar stelpur að vera mættar kl 9:30 á laug. í Holtaskóla.
Þátttökugjald er 6000 kr. pr. iðkanda sem greiðist í síðasta lagi til mín við komu í Reykjanesbæ (6.mars).
Allir iðkenndur spila í sínum eigin Valstreyjum og eigin stuttbuxum (helst rauðum).
Leikmenn taka með í mótið:
Dýnu, svefnpoka (sæng) og kodda. Svo auðvitað; sundföt, sokka, náttföt, úlpu, og húfu.
Muna eftir: Búning + skóm, íþr.galla til að skella sér í milli leikja, vatnsbrúsa,
Taka með holt nesti (t.d. brauð m. áleggi,banana eða aðra ávexti,safa,kókómjólk..) sem gefur orku milli leikja.
Ekki stóla á orkudrykki.
Muna að borða hollan og góðan morgunmat áður en mætt er til leiks á laugardeginum og vera mættar í Reykjanesbæ kl 9:30. Ég verð þá komin á staðinn.
Tilkynnið forföll sem fyrst. Kv. Guðrún
Thursday, March 4, 2010
Föstudagurinn 5.mars
Allir í minniboltanum að mæta í gamla sal á morgunn kl 15:00, strákar og stelpur.
Engin körfuboltaæfing, heldur bara aðeins að hittast fyrir mótið, fá upplýsingar um hvað á að taka með og slíkt. Tekur ekki meira en 30 mín.
Þá foreldra sem vantar upplýsingar endilega að nýta þennan tíma til að spyrja.
Það er ráðstefna í salnum og þess vegna ekki æfing.
Kv. Guðrún og Björgvin.
Leikskipulag hjá stelpunum
Saturday, February 27, 2010
Nettómótið

Hæhæ
Jæja þá fer að koma að næsta móti! :-D
Nettómótið er helgina 6.-7. mars í Reykjanesbæ.
Nánar var fjallað um hvernig við höfum hugsað okkur að hafa þetta um mótshelgina, varðandi ferðir, gistingu og viðveru foreldra á foreldrafundinum, 23.febrúar síðastliðinn!
Mæting foreldra á fundin var ekki góð og gerir það mér mun erfiðara að halda utan um mótið og koma upplýsingum út.
En ég er búin að skrá 1 lið frá okkar stelpum og eftir fundinn reikna ég með að eftirfarandi leikmenn séu með:
María
Anna Guðbjörg
Kristel
Kristín Arna
Eva
Ef eitthvað hefur breyst,vinsamlegast látið mig vita.
Þær stelpur sem ætla að koma með en eru ekki búnar að láta mig vita, commentið hér að neðan og skráið leikmanninn.
Keppnisgjald er 6000 kr. á mann (gott að nýta klósettpappír-peningana í þetta).
Leikmenn koma sér sjálfir á keppnisstað, foreldrar eru mjög vinsælir áhorfendur en meta sjálfir hvort þeir hafi tök á að vera allan daginn og fylgjast með.
Boðið er upp á frítt í sund og er risa hoppikastali og fleira stuð í Reykjaneshöllinni (fótboltahús) og ekki er skylda að fara allar saman í slíkt. Tilvalið fyrir fjölskyldur að gera þessa hluti með börnunum sínum en ef fólk hefur ekki tök á því þá verð ég á staðnum allan tíman og verð með þeim sem hafa ekki foreldri og engin missir af neinu!
Gist er í skólastofu og mikilvægt er að 1 foreldri gisti þar ásamt mér. Best er að það foreldri sem gistir, sé líka á kvöldvöku með mér.
Ef einhver stelpa treystir sér ekki til að gista án foreldris, þá ber foreldri augljóslega að gista með henni.
Foreldri sem gistir er velkomið að senda sína stelpu með mér eða fá far fyrir hana hjá vinkonu til Reykjanesbæjar, ef þau hafa ekki tök á að vera allan laugardaginn og fram á sunnudag í Reykjanesbæ.
Leikir hefjast kl 9 á laugardeginum og verðlaunaafhendingu lýkur um kl. 14 á sunnudeginum.
Allar frekari upplýsingar má finna á síðunni:
http://nettomot.blog.is/blog/nettomot/
Vinstra megin, undir bæklingur 2010 eru allar upplýsingar (sami bæklingur og var dreift á foreldrafundinum).
Þær stelpur sem hafa farið áður (á Samkaupsmót) segja að þetta sé svaka skemmtilegt og foreldrar sem hafa farið mæla eindregið með því að fólk mæti og taki þátt :-)
Á næsta þriðjudag (2.mars) þarf að vera komið á hreint hvaða stelpur eru að fara og foreldrar að láta mig vita (t.d. með commenti) hvernig þeir hafa hugsað sér að hafa þetta hjá sér, þ.e vera á staðnum á laugardeginum eða skilja þær eftir.
Bestu kveðjur
Guðrún
Friday, February 26, 2010
Fjáröflun
Um er að ræða sölu á klósettpappír og eldhúsrúllum.
Eftirfarandi pakkar eru í boði:
Pakki 1: Wc pappír 200 blaða 48 rúllur c.a 24m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 – 3000
Pakki 2: WC MAXI 380 blaða 40 rúllur c.a 46m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 3: Lúxus WC 3ja laga 36 rl c.a 26,5m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 4: Eldhúsrúllur 24 rúllur í balla c.a 12m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 - 3000
Hverjum og einum er frjálst að kaupa eins mikið og hann/hún vill og þið getið verðlagt vöruna eins og ykkur sýnist best. Hver og einn hirðir svo allan ágóða af sinni sölu sem gæti þá nýst til að fjármagna næsta keppnisferðalag.
Allar pantanir þurfa að berast í seinasta lagi fyrir kl. 20:00 á sunnudagskvöld (28. febrúar) á mailið lydur06@ru.is
Takið fram nafn iðkanda, hvaða pakka þið viljið kaupa og magn. Eins og áður kom fram þá er ykkur frjálst að kaupa alla pakkana og í eins miklu magni og ykkur sýnist.
Upplýsingar um greiðsufyrirkomulag og afhendingu á vöru munu svo berast til ykkar á mánudaginn nk (1. mars).
Monday, February 22, 2010
Foreldrafundur
Dagskrá m.a. fjáröflun og Nettómótið (6.-7. mars).
Mikilvægt að mætt sé frá öllum iðkenndum, látið vita um forföll.
Lýður, Guðrún og Björgvin.
Tuesday, February 2, 2010
Kvennaleikur á morgunn

Hæhæ
Meistaraflokksleikur á morgunn miðvikudaginn 3. feb í Iceland Express deild kvenna.
Hlíðarenda
kl: 19:15-20:45
Það er líka mikilvægt að mæta á leiki og fylgjast með til þess að læra.
Gott að sjá í leik það sem við erum búnar að vera að æfa.
Tala nú ekki um til þess að hvetja Val.
Ég verð á staðnum en verð að vera farin heim kl. 20:50, þ.a. endilega skiljið stelpurnar eftir á leiknum en verið komin að sækja þær kl.20:45 (annars bíða þær sjálfar).
Frítt inn fyrir iðkenndur
Allar að mæta!!
kv. Guðrún
Friday, January 29, 2010
Æfingar falla niður
Thursday, January 21, 2010
Póstmótið
Friday, January 15, 2010
Vinavika

Hæhæ
Þá er vinanvikan liðin. Stelpurnar voru mjög duglegar að taka með sér vinkonur og ég held bara að við höfum skemmt okkur mjög vel í þessari viku. Og enn fjölgar í hópnum þ.a við erum á góðu róli!
Á þriðjudaginn fórum við í ratleik eftir æfingu og horfðum svo á körfuboltamynd, Like Mike 2, og var það mjög gaman :-)
Í dag, föstudag, var svo skemmtileg tilbreyting á æfingu en kaninn í kvennaliði Vals, hún Dranadia Roc kom og var með okkur. Stelpurnar tóku rosalega vel á móti henni og hafði hún svo gaman af þeim að hún sá um æfinguna frá upphafi til enda. Það gekk rosalega vel og við verðum endilega að fá hana til að kíkja á okkur oftar í vetur!
Ég er búin að biðja um klósettpappírsölu og vona að það verði sem fyrst. Þá getur hver og ein ákveðið hvað hún vill selja mikið og safnar fyrir sjálfa sig. En meira um það þegar það er alveg komið á hreint.
En svo er næst á dagskrá, mót 23-24. jan í Smáranum!!
Ekki er komið leikskipulag en þið fáið það um leið og það er komið til mín.
Bestu kveðjur
Guðrún
Monday, January 11, 2010
Vinavika Vals
Við viljum minna á að öllum vinum er frjálst að prófa að mæta áfram á æfingar næstu tvær vikurnar
Tuesday, January 5, 2010
Rafræn Reykjavík
Opið er fyrir ráðstöfun frístundastyrksins út janúar mánuð en eftir það verða sendir út gíróseðlar.
Ef barnið er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma
414-8000 eða sendið tölvupóst á ragnhildur@valur.is


