Saturday, February 27, 2010

Nettómótið


Hæhæ
Jæja þá fer að koma að næsta móti! :-D

Nettómótið er helgina 6.-7. mars í Reykjanesbæ.
Nánar var fjallað um hvernig við höfum hugsað okkur að hafa þetta um mótshelgina, varðandi ferðir, gistingu og viðveru foreldra á foreldrafundinum, 23.febrúar síðastliðinn!
Mæting foreldra á fundin var ekki góð og gerir það mér mun erfiðara að halda utan um mótið og koma upplýsingum út.
En ég er búin að skrá 1 lið frá okkar stelpum og eftir fundinn reikna ég með að eftirfarandi leikmenn séu með:

María
Anna Guðbjörg
Kristel
Kristín Arna
Eva

Ef eitthvað hefur breyst,vinsamlegast látið mig vita.
Þær stelpur sem ætla að koma með en eru ekki búnar að láta mig vita, commentið hér að neðan og skráið leikmanninn.
Keppnisgjald er 6000 kr. á mann (gott að nýta klósettpappír-peningana í þetta).


Leikmenn koma sér sjálfir á keppnisstað, foreldrar eru mjög vinsælir áhorfendur en meta sjálfir hvort þeir hafi tök á að vera allan daginn og fylgjast með.
Boðið er upp á frítt í sund og er risa hoppikastali og fleira stuð í Reykjaneshöllinni (fótboltahús) og ekki er skylda að fara allar saman í slíkt. Tilvalið fyrir fjölskyldur að gera þessa hluti með börnunum sínum en ef fólk hefur ekki tök á því þá verð ég á staðnum allan tíman og verð með þeim sem hafa ekki foreldri og engin missir af neinu!
Gist er í skólastofu og mikilvægt er að 1 foreldri gisti þar ásamt mér. Best er að það foreldri sem gistir, sé líka á kvöldvöku með mér.
Ef einhver stelpa treystir sér ekki til að gista án foreldris, þá ber foreldri augljóslega að gista með henni.
Foreldri sem gistir er velkomið að senda sína stelpu með mér eða fá far fyrir hana hjá vinkonu til Reykjanesbæjar, ef þau hafa ekki tök á að vera allan laugardaginn og fram á sunnudag í Reykjanesbæ.
Leikir hefjast kl 9 á laugardeginum og verðlaunaafhendingu lýkur um kl. 14 á sunnudeginum.

Allar frekari upplýsingar má finna á síðunni:
http://nettomot.blog.is/blog/nettomot/
Vinstra megin, undir bæklingur 2010 eru allar upplýsingar (sami bæklingur og var dreift á foreldrafundinum).

Þær stelpur sem hafa farið áður (á Samkaupsmót) segja að þetta sé svaka skemmtilegt og foreldrar sem hafa farið mæla eindregið með því að fólk mæti og taki þátt :-)


Á næsta þriðjudag (2.mars) þarf að vera komið á hreint hvaða stelpur eru að fara og foreldrar að láta mig vita (t.d. með commenti) hvernig þeir hafa hugsað sér að hafa þetta hjá sér, þ.e vera á staðnum á laugardeginum eða skilja þær eftir.

Bestu kveðjur
Guðrún

Friday, February 26, 2010

Fjáröflun

Nú ætlum við í körfunni í Val að fara af stað með fjáröflun fyrir yngri flokkana.
Um er að ræða sölu á klósettpappír og eldhúsrúllum.

Eftirfarandi pakkar eru í boði:

Pakki 1: Wc pappír 200 blaða 48 rúllur c.a 24m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 – 3000
Pakki 2: WC MAXI 380 blaða 40 rúllur c.a 46m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 3: Lúxus WC 3ja laga 36 rl c.a 26,5m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 4: Eldhúsrúllur 24 rúllur í balla c.a 12m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 - 3000

Hverjum og einum er frjálst að kaupa eins mikið og hann/hún vill og þið getið verðlagt vöruna eins og ykkur sýnist best. Hver og einn hirðir svo allan ágóða af sinni sölu sem gæti þá nýst til að fjármagna næsta keppnisferðalag.

Allar pantanir þurfa að berast í seinasta lagi fyrir kl. 20:00 á sunnudagskvöld (28. febrúar) á mailið lydur06@ru.is
Takið fram nafn iðkanda, hvaða pakka þið viljið kaupa og magn. Eins og áður kom fram þá er ykkur frjálst að kaupa alla pakkana og í eins miklu magni og ykkur sýnist.
Upplýsingar um greiðsufyrirkomulag og afhendingu á vöru munu svo berast til ykkar á mánudaginn nk (1. mars).

Monday, February 22, 2010

Foreldrafundur

Foreldrafundur minniboltans, þriðjudaginn 23.febrúar, kl: 19:00 að Hlíðarenda.
Dagskrá m.a. fjáröflun og Nettómótið (6.-7. mars).
Mikilvægt að mætt sé frá öllum iðkenndum, látið vita um forföll.

Lýður, Guðrún og Björgvin.

Tuesday, February 2, 2010

Kvennaleikur á morgunn


Hæhæ

Meistaraflokksleikur á morgunn miðvikudaginn 3. feb í Iceland Express deild kvenna.
Valur—Njarðvík
Hlíðarenda
kl: 19:15-20:45


Það er líka mikilvægt að mæta á leiki og fylgjast með til þess að læra.
Gott að sjá í leik það sem við erum búnar að vera að æfa.
Tala nú ekki um til þess að hvetja Val.


Ég verð á staðnum en verð að vera farin heim kl. 20:50, þ.a. endilega skiljið stelpurnar eftir á leiknum en verið komin að sækja þær kl.20:45 (annars bíða þær sjálfar).

Frítt inn fyrir iðkenndur
Allar að mæta!!

kv. Guðrún