Við verðum með eitt lið á mótinu, Valur 3. Við keppum á þremur völlur, á velli 5, 9 og 10. Á laugardeginum keppum við í Heiðarskóla en þar eru vellir 9 og 10 og á sunnudeginum keppum við á velli 5 sem er staðsettur Íþróttahúsinu við Sunnubraut. Gott er ef leikmenn eiga einhvern góðan íþróttagalla til vera í á milli leikja.
Það er ekki ennþá komið á hreint hvar við gistum. En þeir sem ætla að gista með okkur þurfa að hafa með sér svefnpoka og dýnu(mæli með dýnum sem hægt er blása upp). En annars þurfa allir leikmenn að hafa með sér hrein föt til skiptana, nóg af nesti til að borða á milli leikja, húlpu, húfu og síðan Valsbúningurinn sinn og körfuboltaskór.
Brottför
Við leggjum af stað til Keflavíkur kl. 07:30 frá Vodafone-höllinni og verða allir iðkendur í samfloti á staðinn. Ég(þjálfari) keyrir á staðinn ásamt nokkrum foreldrum.
Kostaður
Mótsgjaldið er 6.000 krónur fyrir hvern leikmann en innifalið í því gjaldi er matur, gisting og keppnisgjald ásamt því að leikmenn fá frítt í sund um helgina.
Ég vill hvetja foreldra til vera virkir á mótinu og taka þátt í gleðinni með krökkunum og ekki hika við það að bjalla á mig ef það vantar einhverjar upplýsingar.
Dagskrá leikja um helgina:
Laugardagur
Valur 3 – KR 7 Völlur 10 – 10:00
Valur 3 – Snæfell 4 Völlur 10 – 12:30
Njarðvík 7 – Valur 3 Völlur 9 – 14:30
Keflavík 7 – Valur 3 Völlur 9 – 19:00
Sunnudagur
Stjarnan 7 – Valur 3 – Völlur 5 – 13:30
BÍÓFERÐ – Old Dogs – 11:00
Kveðja, Björgvim (866-3043)
Friday, March 5, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment