Saturday, May 29, 2010

Strákabíó


Út af því að æfingatímabilið er að ljúka ætlum við að fara í bíó á seinustu æfingu vetrarins! Stefnt er að fara á sunnudaginn klukkan 13 í bíó á Álfabakka. Myndin sem við ætlum á er Ofurstrákurinn. Myndin byrjar kl 13:30 þannig að allir þurfa að vera mættir upp í Valsheimili fyrir kl 13 svo við komum ekki of seint á myndina. Bíóið kostar 600 krónur.

Það þarf tvo bíla til að skutla liðinu niður á Álfabakka. Þjálfari (Björgvin) fer á einum bíl og síðan þarf eitt foreldri til að keyra líka.

Ég kvet alla til að mæta þar sem þetta er í seinasta sinn sem liðið hittist í vetur.


Friday, May 21, 2010

Æfing á hvítasunnudag fellur niður

Æfingin á sunnudaginn(hvítasunnudaginn) fellur niður. Við sjáumst hressir þriðjudaginn 25. maí.

Kv. Björgvin Rúnar

Monday, May 10, 2010

Uppskeruhátíð yngri flokka


Körfubolti í Val
Uppskeruhátíð yngri flokka

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í körfubolta verður haldin í hátíðarsal Vodafone hallarinnar þriðjudaginn 18. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2009-2010.
Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.

Með Valskveðju
Uppskeruhátíðarnefnd

Monday, May 3, 2010

Stelpukeila!

Á morgun, þriðjudaginn 4.maí, ætlum við að fara í keilu á æfingartíma!
Mætum allar á Hlíðarenda og löbbum saman upp í keiluhöll.

Keilan sjálf tekur klukkutíma og svo er pizzaveisla á eftir :-D
Reiknum því með að vera til kl: 17:30.

Allar að koma með 1550 kr. fyrir keilu og pizzu.

Sjáumst, kveðja Guðrún