Thursday, August 19, 2010

ÆFINGAR HEFJAST AFTUR

Jæja, þá eru æfingar að hefjast að nýju eftir sumarfrí.

það er okkur sönn ánægja að tilkynna að allir iðkendur körfuboltans fá að gjöf körfubolta til eignar um leið og iðkendur hafa skráð sig og greitt æfingagjöld. Hvetjum við iðkendur til þess að taka þessa bolta með á æfingar.

Upplýsingar um æfingatíma og þjálfara flokksins má finna hægra megin á síðunni.

Thursday, August 5, 2010

Æfingabúðir

Körfuboltaskóli Vals

Námskeiðið er fyrir börn, 6 ára og eldri og fer fram í glæsilegri aðstöðu í Vodafone höllinni að Hlíðarenda. Lögð verður áhersla á þjálfun í smærri hópum auk þess sem eldri þátttakendur fá einstaklingsþjálfun. Reyndir og góðir leiðbeinendur sjá um skólann og gestakennarar koma í heimsókn. Skráning fer fram á heimasíðu Vals: http://valur.is/Sumarstarf/Korfuboltaskoli/

Boðið verður upp á tvö viku námskeið fyrir 6-11 ára frá 09:00-12:00
Námskeið I: 9.–13. ágúst
Námskeið II: 16.-20. ágúst

Hálfsmánaðar námskeið fyrir12-15 ára frá 12:30-14:00 frá 9.-20. ágúst.

Hálfsmánaðar námskeið fyrir 16-18 ára frá 16:00-17:30 frá 9.-20. ágúst

Verð á vikunámskeiði hjá yngri er 5.000 kr. en taki þau bæði námskeiðin er verðið 8.000 kr.

Verð á námskeiðinu hjá eldri iðkendum er 6.000 krónur tvær vikur.

10% systkynaafsláttur

Skólastjóri verður Lýður Vignisson yfirþjálfari körfuboltans.