Friday, January 29, 2010

Æfingar falla niður

Æfingar falla niður um helgina vegna landsleiks Íslands í handbolta. Leikir liðsins verða sýndir á risatjaldi í aðalsalnum í Vodafone höllinni og eru allir hvattir til þess að mæta.

Thursday, January 21, 2010

Póstmótið



Svona lítur lokaniðurröðin út hjá okkur á sunnudagin.
Eins og við var að búast í svona stóru móti, þá hefur leikjaniðurröðun breyst lítillega en hjá okkur var aðeins seinasta leiknum flýtt um 30 mín.

Minni allar á að koma með peninginn á æfinguna á morgunn (1500 kr.).

Kveðja Guðrún

Friday, January 15, 2010

Vinavika


Dranadia Roc


Hæhæ
Þá er vinanvikan liðin. Stelpurnar voru mjög duglegar að taka með sér vinkonur og ég held bara að við höfum skemmt okkur mjög vel í þessari viku. Og enn fjölgar í hópnum þ.a við erum á góðu róli!

Á þriðjudaginn fórum við í ratleik eftir æfingu og horfðum svo á körfuboltamynd, Like Mike 2, og var það mjög gaman :-)
Í dag, föstudag, var svo skemmtileg tilbreyting á æfingu en kaninn í kvennaliði Vals, hún Dranadia Roc kom og var með okkur. Stelpurnar tóku rosalega vel á móti henni og hafði hún svo gaman af þeim að hún sá um æfinguna frá upphafi til enda. Það gekk rosalega vel og við verðum endilega að fá hana til að kíkja á okkur oftar í vetur!

Ég er búin að biðja um klósettpappírsölu og vona að það verði sem fyrst. Þá getur hver og ein ákveðið hvað hún vill selja mikið og safnar fyrir sjálfa sig. En meira um það þegar það er alveg komið á hreint.

En svo er næst á dagskrá, mót 23-24. jan í Smáranum!!
Ekki er komið leikskipulag en þið fáið það um leið og það er komið til mín.

Bestu kveðjur
Guðrún

Monday, January 11, 2010

Vinavika Vals

Nú er í gangi vinavika Vals og hvetjum við alla til þess að taka með sér 1-2 vini á æfingar. Með á æfingunum verður Byron Davis leikmaður meistaraflokks Vals og mun hann aðstoða við æfingar og eflaust kenna einhverjar nýjar æfingar. Svo er aldrei að vita nema hann verði með troðslusýningu í lokin.

Við viljum minna á að öllum vinum er frjálst að prófa að mæta áfram á æfingar næstu tvær vikurnar

Tuesday, January 5, 2010

Rafræn Reykjavík

Búið er að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík.
Opið er fyrir ráðstöfun frístundastyrksins út janúar mánuð en eftir það verða sendir út gíróseðlar.
Ef barnið er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma
414-8000 eða sendið tölvupóst á ragnhildur@valur.is