Saturday, March 27, 2010

Páskafrí

Jæja nú erum við komin í páskafrí.
(engin æfing á morgun sunnudaginn 28.)

Endilega takið þátt í æfingabúðum Vals sem eru í næstu viku!
(sjá síðasta póst)

Næsta æfing eftir frí er svo þriðjudaginn 6. apríl.

Hafið það gott í fríinu.
kv. Guðrún og Björgvin

Monday, March 22, 2010

Æfingabúðir Vals um páskana

Æfingabúðir Vals um páskana Dagana 29.-31. mars fara fram æfingabúðir Vals í körfuknattleik í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Umsjónamaður verður Lýður Vignisson yfirþjálfari yngri flokka Vals en honum til aðstoðar verða reyndir leiðbeinendur.

Boðið verður upp á tvo aldursflokka, yngri og eldri. Yngri iðkendur fæddir 1998-2003 (6-11 ára) eru frá kl. 09:00-11:30. Ráðlegt er að senda börnin með smávegis næringu með á æfingarnar en hlé verður gert á æfingum milli 10:00-10:20 til þess að nærast.

Eldri iðkendur fæddir 1993-1997 (12-16 ára) eru frá kl. 12:00-14:00

Æfingabúðirnar munu einkennast af grunn- og tækniþjálfun þar sem lögð verður áhersla á einstaklinginn. Æfingabúðir yngri iðkenda munu þó einnig einkennast af leikjum og skemmtun en á síðasta degi æfingabúðanna verður haldið mót milli iðkenda í hvorum aldurshópi fyrir sig.Þátttökugjald er kr. 3.000 krónur sem greiðist á fyrsta degi æfingabúðanna.

50% Vinaafsláttur: Ef þú ert Valsari og langar að bjóða einhverjum utan félagsins með þér í æfingabúðirnar þá er það alveg sjálfsagt. Ef þú færð einhvern vin með þér í æfingabúðirnar þá borgið þið báðir/báðar einungis hálft gjald.

Skráningar berist til Lýðs á netfangið Lydur06@ru.is eða í síma 694-4033. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu iðkenda sem og nafn, kennitölu og gsm-símanúmer foreldra.

Saturday, March 20, 2010

Sunnudagurinn 21.mars

Halló stelpur og strákar

Æfingin hjá okkur verður kl 12:00 á morgun, í sal 1.

Meistaraflokkur karla er í úrslitakeppni 1.deildar og markmiðið er að komast upp í úrvalsdeild.
Fyrsti leikurinn í undanúrslitaeinvíginu er á sunnudaginn.
Valur - Skallagrímur
kl: 20:00
Endilega mæta og styðja Val!

Bestu kveðjur
Guðrún og Björgvin

Friday, March 5, 2010

Nettómótið - Upplýsingar fyrir strákana

Við verðum með eitt lið á mótinu, Valur 3. Við keppum á þremur völlur, á velli 5, 9 og 10. Á laugardeginum keppum við í Heiðarskóla en þar eru vellir 9 og 10 og á sunnudeginum keppum við á velli 5 sem er staðsettur Íþróttahúsinu við Sunnubraut. Gott er ef leikmenn eiga einhvern góðan íþróttagalla til vera í á milli leikja.

Það er ekki ennþá komið á hreint hvar við gistum. En þeir sem ætla að gista með okkur þurfa að hafa með sér svefnpoka og dýnu(mæli með dýnum sem hægt er blása upp). En annars þurfa allir leikmenn að hafa með sér hrein föt til skiptana, nóg af nesti til að borða á milli leikja, húlpu, húfu og síðan Valsbúningurinn sinn og körfuboltaskór.

Brottför
Við leggjum af stað til Keflavíkur kl. 07:30 frá Vodafone-höllinni og verða allir iðkendur í samfloti á staðinn. Ég(þjálfari) keyrir á staðinn ásamt nokkrum foreldrum.

Kostaður
Mótsgjaldið er 6.000 krónur fyrir hvern leikmann en innifalið í því gjaldi er matur, gisting og keppnisgjald ásamt því að leikmenn fá frítt í sund um helgina.

Ég vill hvetja foreldra til vera virkir á mótinu og taka þátt í gleðinni með krökkunum og ekki hika við það að bjalla á mig ef það vantar einhverjar upplýsingar.

Dagskrá leikja um helgina:

Laugardagur
Valur 3 – KR 7 Völlur 10 – 10:00
Valur 3 – Snæfell 4 Völlur 10 – 12:30
Njarðvík 7 – Valur 3 Völlur 9 – 14:30
Keflavík 7 – Valur 3 Völlur 9 – 19:00

Sunnudagur
Stjarnan 7 – Valur 3 – Völlur 5 – 13:30
BÍÓFERÐ – Old Dogs – 11:00


Kveðja, Björgvim (866-3043)

Síðasta tilkynning fyrir Nettómót.



Allar stelpur að vera mættar kl 9:30 á laug. í Holtaskóla.

Þátttökugjald er 6000 kr. pr. iðkanda sem greiðist í síðasta lagi til mín við komu í Reykjanesbæ (6.mars).

Allir iðkenndur spila í sínum eigin Valstreyjum og eigin stuttbuxum (helst rauðum).

Leikmenn taka með í mótið:
Dýnu, svefnpoka (sæng) og kodda. Svo auðvitað; sundföt, sokka, náttföt, úlpu, og húfu.
Muna eftir: Búning + skóm, íþr.galla til að skella sér í milli leikja, vatnsbrúsa,
Taka með holt nesti (t.d. brauð m. áleggi,banana eða aðra ávexti,safa,kókómjólk..) sem gefur orku milli leikja.
Ekki stóla á orkudrykki.

Muna að borða hollan og góðan morgunmat áður en mætt er til leiks á laugardeginum og vera mættar í Reykjanesbæ kl 9:30. Ég verð þá komin á staðinn.

Tilkynnið forföll sem fyrst. Kv. Guðrún

Thursday, March 4, 2010

Föstudagurinn 5.mars

Hæhæ
Allir í minniboltanum að mæta í gamla sal á morgunn kl 15:00, strákar og stelpur.
Engin körfuboltaæfing, heldur bara aðeins að hittast fyrir mótið, fá upplýsingar um hvað á að taka með og slíkt. Tekur ekki meira en 30 mín.
Þá foreldra sem vantar upplýsingar endilega að nýta þennan tíma til að spyrja.

Það er ráðstefna í salnum og þess vegna ekki æfing.


Kv. Guðrún og Björgvin.

Leikskipulag hjá stelpunum




Hér kemur leikskipulagið.
Þetta er fyrsta útgáfa og getum við búist við einhverjum breytingum, en þó er það ekki víst.
Ég hef ekki fengið að vita hvar við gistum, læt hér inn allar upplýsingar um leið og ég fæ þær.

Bestu kveðjur
Guðrún